|
19.02.2006 02:48:39 / gunna
www.123.is/gudrunb
verið velkomin á síðu mína þar.. Nýjar myndir þar reglulega
»
14.02.2006 15:18:33 / gunna
velkomin á nýju bloggsíðuna mína
http://www.123.is/gudrunb
»
26.01.2006 13:38:24 / gunna
Já já ég
er ekki dauð.. hehe
Það er bara búið að vera frekar mikið að gera hjá mér. Ég er
auðvitað eins og þið vitið búin að taka við nýrri stöðu í vinnunni
minni og ég er búin að nota allann þennann mánuð til að taka til
þar aðeins og ég er líka að skipuleggja næstu mánuði þannig að það
er frekar mikið að gera hjá konunni.
Ansi margar kvartanir hafa mér borist um að ég sé ekki að blogga
og bara allir orðnir hundleiðir á mér * DÆS * það
verður bara að hafa það.
Þið þarna vinir mínir þið getið alveg bara beðið eftir nýrri
færslu eða bara hringt í mig ... ha !
Já eða ég í ykkur síminn virkar víst á báðar
áttir.
Vildi bara láta ykkur vita að ég er á lífi en ef þið
kommentið ekkert á blogginu hjá mér þá nenni ég ekki að skrifa
hvort eð er þannig að
í bili bara
HASTALAVISTA
»
09.12.2005 23:36:24 / gunna
Jæja
loksins loksins
Flensan búin og mín bara komin í pakkgír sko.
Já ég er að fara að flytja elsurnar mínar og ekki nóg með það
framtíðin er óráðin og það er eitthvað sem að ég hef bara ekki lent
í áður. Hver veit svosem hvað maður gerir. Það
getur bara vel farið svo að maður flyti til útlanda eða
eitthvað.
Já vinnan býður mér uppá ýmislegt og ég er alvarlega að hugsa
málið.
Jú jú jólin koma og ég er ekki búin að kaupa eina
jólagjöf, svo stressuð er ég eða þannig
Jólin koma hvort sem að ég er ready eða ekki
En þá er það málið hvað á ég að gefa þessu liði í
jólagjöf. ?????????
Eg er bara ekki með eina einustu hugmynd um það. Já
elskurnar eins og sést á því að ég sé að blogga núna þá leiðist mér
alveg svakalega. Kallinn vill endilega horfa á eitthvað speis
kjaftæði í sjónvarpinu og ég er komin með það á hreint að það
verður auka sjónvarp í nýja húsinu.
Já haldið að konan hafi ekki bara selt húsið sitt bara svona out
of blue, eða þannig já , það má eiginlega segja það.
Við vorum með á sölu en ætluðum ekkert að gera fyrr en í vor eða
sumar. En við erum bara komin vel á veg með að plana
framtíð upp á nýtt enda gott að byrja aftur annars
slagið.
Jæja er að á sinaskeifabólgu af þessu pikki
drullist nú til að commenta á konuna
sko ég er búin að
selja húsið
hætta að reykja
fá stöðuhækkun í vinnunni frá og með áramótum
og nú vil ég fá comment
OK ?? EINS GOTTTTTT lol
KVEÐJA
ég
»
05.11.2005 17:35:02 / gunna
Eins
pathetic og það hljómar þá er ég LASIN og
ekkert smá heldur
Ég er að drepast úr kvefi og hita og beinverkjum. Og það sem er
kanski allra verst er að það vorkennir mér enginn og
það er minn helsti hausverkur í dag. Það bíður mér
enginn að koma og elda handa mér eða rétta mér kókglasið þar sem að
ég lygg fyrir framan sjónvarpið.
Ef að þetta væri kallinn minn eða krakkarnir sem að væru veikir þá
myndi ég vera send hægri vinstri til að elda rétta kók ná í kaffi
nú eða bara liggja með einhvern í fanginu til að nudda hausverkinn
í burtu og myndi ég líka taka til, þvo og fl.
Afhverju í ósköpunum verða kallar alltaf veikari en
konur. Og ekki nóg með það þá er maðurinn alltaf
tilbúin til að segja mér að ég eigi ekkert bágt þó að ég sé
drullulasinn ég sé ekki svona mikið lasin
sko. En ef hann er lasinn þá hefur enginn fengið eins
mikla flensu áður og hann er meira sloj en aðrið og hann á að fá að
sitja einhverstaðar og hreyfa sig sem minnst. Svo að honum slái
ekki niður og versni. En þetta gildir ekki um mig
Skrítið. Kynjamunruinn verður alltaf meiri og meiri það er
alveg ótrúlegt. Samt eru endalausar umræður um að konur og karlar
séu jafnir en það er bara alls ekki þannig við verðum
til dæmis allt öðruvísi veikir en þeir. hehehe
Nú það styttist í að ég skreppi til Noregs þannig að það er eins
gott að vera ekki með flesnuskít þá.
Ég er búin að fá mynd að litlu frænku minni og hún er guðdómlega
falleg. Bara nokkuð lík frænku sinni sko.... Ég
líka benti mömmu hennar á að Guðrún væri nú bara nokkuð fallegt
nafn á undanhaldi LOL veit ekki hvað hún
hefur haldið um mig ég var nú bara að
grínast. Ég er búin að ákveða það að panta pizzu í
kvöldmatinn, og strákarnir mínir lofa mig í hástert
núna tja allavega þangað til að ég fer að moka í þá
fisk og grænmeti heheh það er sko næsta víst.
Jæja það er verið að nöldra í mér að fara
eitthbað aldrei má maður bara vera veikur í
friði þannig að ég neiðist til að fara á rúntinn með
börnin þó að ég sé sloj og ætti bara að vera í rúminu
.
hastalavista
»
02.11.2005 20:06:33 / gunna
Jæja jæja
kom að því ..
Jón og Alma (the tipical rugludalls ) eignuðust sína aðra dóttir í
nótt ss. 02.11.05 . Hún kom í heiminn með trukk og dýfu
um klukkan 3 í nótt og var 15 merkur og 51 cm.
Ohhhhhh ég get ekki beðið eftir að sjá hana.
Stoltur pabbinn sagði mér að hún væri allt öðruvísi en Kolbrún
þannig að hún er þá líklega líkari pabba sínum því að
Kolbrún er alveg eins og mamma hennar Já
já ég er stolt frænka og tel dagana þar til að mér
verður boðið í heimsókn.
Annars er lítið að frétta fyrir utan þetta. Nema auðvitað að maður
upplifir sig sem Eskimóa hérna á þessu skítkalda skeri. Það er svo
kalt hérna að það er ekki fyndið. Hlakka til að komast í hlýjuna í
Noregi.
Well thats all folks
______________________________________________
Hvernig væri nú að þið færuð að koma með einhver
comment hérna ha !!! Það eru um 20-30 manns sem kíkja
inn og enginn kvittar.
Ég er alveg að fara að gráta.
»
31.10.2005 18:52:53 / gunna
Hvernig stendur á því að sumt fólk heldur að heimurinn snúist í
kringum rassgatið á því ??
Það er alveg merkilegt að þannig lifir meiripartur mannkynsins .
Það er því ekki skrítið að fólk skuli drepa hvort annað og þar fram
eftir götunum. Það hefur nefnilega komið í ljós að flestir sem að
láta svona eru hálf klikkaðir einstaklingar. Og þetta
fólk er líka snillingar að koma hlutunum yfir á aðra. Já yfir á
aðra, meinandi þá að allt sem þetta fólk gerir er réttara og
sannara en hjá öðrum getur alltaf með öllu móti komið sínu yfir á
aðra.
Þetta er frekar leiðinlegt að búa við. Það væri kanski í lagi að
setja lög yfir svona fólk. Og hreinlega koma svona fólki í skilning
um það að þetta er bara alls ekki í boði. En mundu þau skilja
það?? Nei ég held ekki þau myndu bara koma
öðrum í lagana verði í staðinn fyrir þau. Afhverju ætti þetta fólk
að þurfa að horfast í augu við sjálft sig. ??? Það gæti hreinlega
endað með þvi að fólk þyrfti í alvöru að horfast í augu við sjálft
sig. Og það yrði nú hræðilegt. Já fólk myndi sjá
frekjuhunda dauðans og hrienleg myndi það bíta sjálft sig í
rassgatið. Og það er nú ekki
gott að þurfa að vera með eigið kúkabragð í
munninum það sem eftir er ævinnar.
Þetta þýðir að
fólk er almennt fífl. En þetta á ekki við mig 
En þig ??
»
27.10.2005 13:32:36 / gunna
Hann á afmæli i
dag, hann á afmæli i dag ,
hann á afmæli hann Ingi Þór
Hann á afmæli í daaaaaaaaaagggggggggggg
Já það eru
komin 8 ár síðan að litli rauðhærði skæruliðinn minn kom í heiminn
og af þvi tilefni syng ég og talla 
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN KÚTUR NJÓTTU HANNS VEL 
KVEÐJA mamma.
»
24.10.2005 17:25:17 / gunna
Hæ hæ allir og enginn.
Ég sit hérna og hugsa um lífið og tilveruna. Og að sjálfsögu
Kvennafrídaginnnnnnn
Ég fór á bensínstöð í dag og þar
voru bara konur að vinna, ég fór í Bónus og ég sá bara konur í
vinnunni. Og ég fór í sjoppu og ég sá bara konur í vinnunni. Jú ég
hélt að tilgangurinn með kvennafrídegi væri að gefa konum frí frá
vinnu. ???
Ég hef greinilega misskilið
eitthvað um hvað málið snýst. Er þessi dagur til þess að karlmenn
geti fengið frí frá konum og farið eitthvað að leika sér.
?? Nei ég segi bara svona. Alltaf er þetta svona
þegar eitthvað fyrir konur eru í gangi, þá fynnst karlmönnum
endilega það vera þannig að þeir séu að fara á mis við eitthvað og
þeir mótmæla harðlega. Eins og það snerti þá eitthvað
.....
Karlmenn og konur ..... um hvað
snýst þetta eiginlega. Jú við erum komin af öpum það er ljóst en
hvað með framhaldið ?? Eigum við enn að sveiflast í
trjám.
Er ekki kominn tími til að konur
fari nú að taka völdin í einhverskonar mynd ? Mér fynnst
það hvað fynnst ykkur ??
Commenta á það stelpur
Er apakenningin allsráðandi eða er eitthvað annað sem að við getum
hallað okkur að ??
»
20.10.2005 21:20:12 / gunna
Hvernig
er það .. ?????
Er ég ein um að finnast það bjánalegt að blogga ?
Hvernig væri nú að þið mynduð fara að segja eitthvað hérna með
mér!! Þó það væri ekki nema kvitt.
»
13.10.2005 11:15:30 / gunna
Talandi
um að geta ekki ákveðið sig.....
Við erum búin að vera í húsapælingum eins og þið munið ... og nú
erum við aftur komin af stað. Nú er pælingin að selja
og byggja. Jú það getur víst borgað sig.
Það má eiginlega segja það að maðurinn minn sé mest rokkhuga maður
sem að ég hef kynnst um ævina, hann bara getur ekki ákveðið sig
fyrir sitt litla líf. En það má með sanni segja að það
er aldrei lognmolla í kringum okkur hjónin.
Nú er bilað að gera í vinnunni minni en flensan hefur reddað mér
sm´fríi inni á milli og það er allt í góðu. Gott að geta
pústað smá og fengið eitt og eitt kveld í fríi.
Í morgun vaknaði gengið mitt upp
og það fyrsta sem að þeir sögðu var
VEIIIIIIIIIIIII ÞAÐ ERU KOMIN JÓL.
Heheheheh það er nefnilega farið að snjóa. Gunnar
er viss um að jólin komi í vikunni og það er bara gaman að fylgjast
með þeim. Ingi var ekki að geta labbað í skólann í morgun hann var
svo upptekin af því að búa til snjólbolta á leiðinni. Heheheh
þannig að mamma hanns pikkaði hann upp og ók honum á leiðarenda en
hann tók sko snjóboltann með sér í skólann.
Jæja thats all today
seja on comments.
»
08.10.2005 14:15:13 / gunna
Vá hvað
dagarnir fljúga áfram.
Ég er einmitt að hugsa það núna að það eru 76 dagar til
jóla. Þetta er auðvitað ekki í lagi. 'i dag er
laugardagur og ég er að reyna að mana mig upp í að þrífa hérna
heima hjá mér en ég nenni því bara alls ekki. Það er sko samt
ekki vanþörf á því en ég get bara ekki fyrir mitt litla líf hugsað
mér að byrja.
Ég er búin að vera í stappi alla vikuna og er að vinna á morgun
líka þannig að ég gæti alveg hugsað mér að vera bara með lappirnar
uppí loft í dag. Eeeeeeeeeeeennnnnnnnnnnnnnnn það
þarf að taka í gegn hérna og mig vantar svo pepp til að
byrja. peppeppppeppppp
Nú svo ákvað ég að verðlauna mig með því að setja lambalæri í
ofninn og ætla að hafa allskonar gúmmulaði með þvi.
Ummmmmmmm nammi góður matur í kveld. kanski
að maður fjárfesti bara í rauðvíni með matnum ........
Jæja nenni ekki að bulla meira í dag
kveðja
'Eg
»
06.10.2005 08:57:19 / gunna
Jæja er
maður bara ekki í endalausum barnaleikjum ?
Ég var klukkuð 
þá á ég að segja 5 hluti sem að enginn veit um mig.
1 ) Ég er geggjað hrædd við geitunga.
2 ) Ég er heimsmeistari. ( en í hverju ?? )
3 ) Minn leyndasti draumur er að verða ríkur ( lol )
4 ) Mér fynnst ekki lélegur húmor fyndinn.
5 ) Ykkur kemur restin ekki við .......
Og hvað af þessu er nú 100 prósent satt ?? Thats for me to know an
you to find out
Annars er bara ekkert nýtt síðan síðast. Ég er bara að vinna á
fullu og gera mitt besta til að nýta þennann tíma fram að
jólum.
Annars er ég að spá í að fara að kaupa jólagjafirnar og klára það
bara snemma þetta árið. Annars er ég nokkuð viss um að ég muni ekki
standa við það.
Jæja nenni ekki að skrifa meira
síjú on the comments darlings
bæ
»
03.10.2005 21:45:06 / gunna
Jæja
hverjir eru í fílu úti mig ????? OOOOOOOO
eins og mér sé ekki sama um það.
Jæja allavega. Þið vissuð af Ameríkuferðinni minni ...
well ég gerði heiðarlega tilraun til að setja hana
hérna inn en einhverrahluta vegna hvarf helvítis greinin og ég
nennti ekki að setja hana inn aftur. En mig langar samt að
benda á að maður getur verið óheppin í útlöndum og ég var það
vissulega á köflum. Það er svosem ekkert nýtt.
Ég kom hérna inn og sá að Begga og Ragga voru að segja meira en ég
þannig að ég var að koma og skrifa eitthvað inn. Annars hefur
svosem ekki stoppað vinnan þannig að það er ekkert skrítið að maður
nenni ekki inn á netið til að blogga þegar maður kemur þreyttur
heim eftir langann og strangann dag. kanski frá 10 um morgun og
fram að miðnætti....
Þið verðið bara að fyrirgefa mér þetta elskurnar mínar.
Annars er ekkert að frétta nema að ég er að fara til oslo í nov.
og Minniappolis í des. Þannig að ég hef þá farið alls 5
sinnum til útlanda á þessu ári og geri aðrir betur.
Jæja er að spá i að fara að lúlla sé ykkur seinna.
Gott að sjá að þið söknuðuð mín 
»
23.08.2005 15:50:31 / gunna
Hi hi
Her er gott og gaman ad vera. Vil bara senda ykkur sma kvedju
online. Erum buin ad hafa thad gott og skemmta okkur
vel og mikid.
Erum ad gera okkur klar i ad fara heim a morgun en thad er sko
engin sorg tvi ad her er 45 stiga hiti og fer haekkandi. uff.
Set svo inn ferdasoguna thegar eg kem heim.
Bestu kvedjur fra Orlando
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|